<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, desember 04, 2007

Aha ha ha ha eins og jólasveinninn segir í dag (bannað að segja hó hó hó þar sem það má túlka sem vændiskona á engilsaxnesku). Fýlupúkinn er farinn úr mér og þó nokkuð síðan, ég var bara einstaklega pirraður þennan dag sem ég skrifaði síðustu færslu. Bið lesendur að afsaka.

Annars er lund mín með léttara móti í dag þar sem ég var að fá þær fréttir að ég fæ að fara til Brussel í janúar á vegum Vatnamælinga. Þar á ég að sækja fund vegna skila á GIS gögnum til Evrópusambandsins í tengslum við Vatnatilskipun Evrópu. Fundurinn er bara í einn dag en ég fer í þrjá og fæ því tækifæri til að spranga aðeins um í Brussel. Hef aldrei komið þangað áður en mig grunar að þetta sé nú bara mikið til skrifstofubyggingar.



This page is powered by Blogger. Isn't yours?