<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, maí 21, 2008

Pöpullinn vill nýtt blogg og eitthvað í léttari kantinum. Alræt ..... er að fara að skella mér til Svíþjóðar í viku, business og plesure ferð. Fer á föstudaginn og eyði degi í Stokkhólmi en fer svo í heimsókn til Ellans í Vasteras þar sem sá góði maður stundar nám (var að senda þér email þannig að þú mátt lesa það við fyrsta tækifæri).

Á mánudeginum tekur svo við fundarseta næstu 3 daga í tengslum við GIS og vatnafarsgögn í Nörrkoping. Það verður eflaust nóg að gera en vonast til að geta skoðað mig eitthvað um líka.

Annars er bara búið að vera nóg að gera í ákveðnu verkefni sem ég þurfti að klára áður en ég fór út og hafðist það núna í dag en á eftir að fínpússa þetta aðeins á morgun.

Sum sé ég er á leið í sólina í Svíþjóð og mun væntanlega styðja vel við bakið á hinni sænsku Charlotte í júróvísjón ef að ísland dettur út.



This page is powered by Blogger. Isn't yours?