<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, júlí 08, 2008

Hvaða leti er þetta í manni, langt langt á milli færslna hérna. Annars er lítið að frétta nema það kannski helst að ég er búinn að fjárfesta í glæsilegum gítar og er byrjaður að reyna að glamra eitthvað á hann.

Er langt í frá spilandi en hef þó getað spilað byrjunar stefið í laginu Enter Sandman með Metallica. Mér er líka illt í puttunum og er hálf dofinn í fingurgómunum, sérstaklega óhentugt þegar maður reynir að bora í nefið. Hef enga tilfinningu fyrir því hvað ég er að gera þarna uppi og það getur verið varasamt.

Það stefnir í ekkert sumarfrí hjá mér í ár en er að spá í að nýta orlofið mitt í haust og kíkja þá eitthvað af landi brott. Kannski Ástralíu ef krónurnar mínar verða ekki orðnar of verðbólgnar.



This page is powered by Blogger. Isn't yours?